Skip to main content
Mánaðarlega Skjalasafn

maí 2025

Vestmannaeyjar – Batamessa 25. maí kl. 11.00

Með Fréttir

Batamessa í Landakirkju í Vestmannaeyjum
sunnudaginn 25. maí kl. 11.00

Vinir í bata í Vestmannaeyjum bjóða til batamessu, sunnudaginn 25. maí n.k. kl. 11.00.

Vinir í bata sjá um þjónustu og vitnisburð og sr. Guðmundur Örn Jónsson messar.
Kór Landakirkju verður með tónlistina.

Vinir í bata, bjóðið með ykkur gestum.
Það eru allir velkominr í batamessu.

Vorhátíð Vina í bata verður í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 18. maí kl. 17.00

Með Fréttir

Uppskeruhátíð vorsins 2025

Verður í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 18. maí n.k. kl. 17.00

Við ætlum að koma saman á góðri stund og gleðjast yfir árangrinum
sem Tólf spora starfið hefur gefið af sér með lofgjörð og fyrirbæn.
Á eftir höfum við svo kaffi og meðlæti og gott spjall.

Það er gott að hittast og finna hvernig þakklætið
vex og dafnar þegar við leyfum því að komast að.

Hlökkum til að sjá ykkur,
bjóðum fólki með okkur og kynnum sporastarfið.

Öll velkomin.