Skip to main content

Ritningargreinar við Tólf sporin

Hér eru ritningargreinarnar sem eiga við hvert hinna Tólf spora og eru lesnar á víxl við sporin.

Ritningargreinarnar eru valdar af höfundum bókarinnar Tólf sporin – Andlegt ferðalag (The Twelve Steps – A Spiritual Journey, útg. RPI Publishing inc.)

  1. Rómv. 7:18 = Ég veit að ekki býr neitt gott í mér, það er, í spilltu eðli mínu. Að vilja veitist mér auðvelt, en mig skortir alla getu til góðs.
  2. Filip. 2:13 = Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.
  3. Rómv. 12:1 = Því brýni ég ykkur systkin, að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi.
  4. Harmlj. 3:40 = Rannsökum breytni vora og prófum og snúum aftur til Drottins.
  5. Jak. 5:16a = Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru, til þess að þið verðið heilbrigð.
  6. Jak. 4:10 = Auðmýkið ykkur fyrir Drottni og hann mun upphefja ykkur.
  7. 1. Jóh. 1:9= Ef við játum syndir okkar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af öllu ranglæti.
  8. Lúk. 6:31 = Og eins og þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo
    skuluð þér og þeim gera.
  9. Matt. 5:23-24 = Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar, að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér, þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína.
  10. 1. Kor. 10:12 = Sá er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki.
  11. Kol. 3:16a = Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki.
  12. Gal. 6:1 = Bræður mínir og systur! Ef einhver er staðinn að misgjörð, þá
    leiðréttið þið, sem andleg eruð, þann mann með hógværð. Og hafið gát á sjálfum ykkur, að þið freistist ekki líka.