Tólf sporin
Tólf sporin eins og Vinir í bata tileinka sér þau
Tólf sporin eru tekin hér upp úr bókinni Tólf sporin – Andlegt ferðalag (The Twelve Steps – A Spiritual Journey) en þar eru þau prentuð með leyfi Alcoholics Anonymous World Services Inc. Leyfi þetta þýðir þó ekki að AA-samtökin hafi farið yfir eða samþykkt innihald bókarinnar eða að samtökin séu sammála efni hennar.
AA-efni er eingöngu ætlað til hjálpar alkóhólistum og stendur það óhaggað, þó að Tólf sporin séu aðlöguð öðrum vandamálum og notuð þannig til hjálpar í hvers konar erfiðleikum.
Í fyrsta sporinu hefur orðasambandinu gegn áfengi verið breytt í vegna aðskilnaðar frá Guði til að þjóna tilgangi bókarinnar. Orðrétt þýðing hefði verið: vegna þeirra áhrifa sem aðskilnaður frá Guði hefur á okkur.
Ritningarversin sem vísað er til á eftir hverju spori eru einnig tekin beint upp úr ofangreindri bók og eru þau valin af höfundum bókarinnar.
- Við viðurkenndum vanmátt okkar vegna aðskilnaðar frá Guði og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi. (Rómv. 7:18)
- Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur heil að nýju. (Filip. 2:13)
- Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum. (Róm. 12:1)
- Við gerðum óttalaust nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar. (Harmlj. 3:40)
- Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir Guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar. (Jak. 5:16a)
- Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla okkar skapgerðar-bresti. (Jak. 4:10)
- Við báðum Guð í auðmýkt að fjarlægja brestina. (1. Jóh. 1:9)
- Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar. (Lúk. 6:31)
- Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi sem það særði engan. (Matt. 5:23-24)
- Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust. (1. Kor. 10:12)
- Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um þekkingu á því sem hann ætlar okkur og styrk til að framkvæma það. (Kol. 3:16a)
- Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi. (Gal. 6:1)