Ritningargreinar við Tólf sporin
Hér eru ritningargreinarnar sem eiga við hvert hinna Tólf spora og eru lesnar á víxl við sporin.
Ritningargreinarnar eru valdar af höfundum bókarinnar Tólf sporin – Andlegt ferðalag (The Twelve Steps – A Spiritual Journey, útg. RPI Publishing inc.)
- Rómv. 7:18 = Ég veit að ekki býr neitt gott í mér, það er, í spilltu eðli mínu. Að vilja veitist mér auðvelt, en mig skortir alla getu til góðs.
- Filip. 2:13 = Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.
- Rómv. 12:1 = Því brýni ég ykkur systkin, að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi.
- Harmlj. 3:40 = Rannsökum breytni vora og prófum og snúum aftur til Drottins.
- Jak. 5:16a = Játið því hvert fyrir öðru syndir ykkar og biðjið hvert fyrir öðru, til þess að þið verðið heilbrigð.
- Jak. 4:10 = Auðmýkið ykkur fyrir Drottni og hann mun upphefja ykkur.
- 1. Jóh. 1:9= Ef við játum syndir okkar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af öllu ranglæti.
- Lúk. 6:31 = Og eins og þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo
skuluð þér og þeim gera. - Matt. 5:23-24 = Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar, að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér, þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína.
- 1. Kor. 10:12 = Sá er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki.
- Kol. 3:16a = Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki.
- Gal. 6:1 = Bræður mínir og systur! Ef einhver er staðinn að misgjörð, þá
leiðréttið þið, sem andleg eruð, þann mann með hógværð. Og hafið gát á sjálfum ykkur, að þið freistist ekki líka.