Skip to main content

Kirkjur á höfuðborgarsvæðinu

Hér er listi yfir þær kirkjur á höfuðborgarsvæðinu sem hafa boðið upp á Tólf spora starf veturinn 2024-2025.

Nýjar byrjanir hafa verið settar inn þar sem upplýsingar hafa borist.

Árbæjarkirkja

Tólf spora starfið í Árbæjarkirkju hefst að nýju í janúar 2024

Um er að ræða 16 vikna prógramm sem hefst í janúar og lýkur í maí 2024. Fyrst eru tveir kynningarfundir þar sem fólk hefur tækifæri til að kynna sér prógrammið. Það eru allir velkomnir á þessa opnu fundi og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram. Fyrsti opni fundurinn verður miðvikudaginn 10. janúar 2024 kl.19:00.
Næsti opni fundurinn verður 17. janúar en á þriðja fundi 24. janúar verður hópunum lokað og reiknað með að þau sem mæta þá ætli að vera með fram á vorið. (Best er að mæta á báða opnu fundina)
Fundartími: Miðvikudagar kl. 19:00-21:00.

Digranes- og Hjallaprestakall.

Það verður ný sporabyrjun í Hjallakirkju í Kópavogi eftir áramótin. Farin verður 16 vikna ferð (hraðferð) í 12 sporunum og verður fyrsti opni fundurinn Miðvikudaginn 10. janúar 2024 kl. 19.00. Það eru aðeins tveir opnir fundir í hraðferð og það verður líka opið 17. janúar. Það þarf að mæta á opnu fundina til að vera með, ekki þarf að skrá sig, bara mæta.
Verið velkomin á sporafund.

Fundartími:  Miðvikudagar kl. 19.00-21.00

Garðaprestakall (Vídalíns- Garða- og Bessastaðakirkja)

Fyrsti fundur haustið 2024 verður miðvikudaginn 2. október n.k. kl. 20.00 í Safnaðarheimili Bessastaðasóknar, Brekkuskógum 1, Álftanesi. Næstu þrír fundir eru einnig opnir en á fundinum 23. október verður hópum lokað.
Fundatími: Miðvikudagar kl. 20:00-22:00

Grensáskirkja 

Fyrsti opni fundur vetrarins 2024-2025 verður fimmtudaginn 5. sept. 2024. Næstu þrír fundir eru einnig opnir en á fundinum 26. september verður hópum lokað.
Fundatími: Fimmtudagar kl. 19:15-21:15

Kirkja Óháða safnaðarins

Fyrsti opni fundur vetrarins 2024-2025 verður fimmtudaginn 5. sept. 2023 kl.19.30.
Næstu þrír fundir eru einnig opnir en á fundinum 26. september verður hópum lokað.
Fundatími: Fimmtudagar kl. 19.30-21.30

Lágafellssókn Mosfellsbær 

Fyrsti fundur haustið 2023 verður miðvikudaginn 4. október n.k. kl. 19.30 í Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, Mosfellsbæ. Næstu þrír fundir eru einnig opnir en á fundinum 25. október verður hópum lokað.
Fundatími: Miðvikudagar kl. 19:30-21:30

Lindakirkja í Kópavogi

Tólf spora starfið hefst að nýju í janúar 2024, kl. XX
Farin verður 16 vikna ferð eða svokölluð hraðferð þar sem einni yfirferð um sporin lýkur í vor. Fyrst eru tveir kynningarfundir þar sem fólk hefur tækifæri til að kynna sér prógrammið. Það eru allir velkomnir á þessa opnu fundi og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram.
Fyrsti opni fundurinn verður miðvikudaginn xx janúar kl. 18:00. Næsti opni fundurinn verður xx  en á þriðja fundi xx verður hópunum lokað og reiknað með að þau sem mæta þá ætli að vera með þessar vikur. (Best er að mæta á báða opnu fundina)

Fundartími: Miðvikudagar kl. 18:00-20:00.