Skip to main content
 

Vinir í bata

Vinna okkar í Tólf sporunum hefur bætt líf okkar og verið okkur andleg vakning

 

Vinir í bata

Við erum hópur fólks sem tileinkum okkur Tólf sporin sem lífstíl

 

Vinir í bata

Við erum á andlegu ferðalagi með öðru fólki þar sem Guð er okkar leiðsögumaður

Nýjustu fréttir

Fréttir
apríl 21, 2024

Vorhátíð Vina í bata í Selfosskirkju 8. maí n.k.kl.20.00

Vorhátíð 2024 Miðvikudagskvöldið 8. maí 2024, kl. 20.00: Flest höfum við lokið við Andlega ferðalagið okkar í 12 sporunum þetta vorið. Mörg finnum við vel fyrir þeim bata sem hefur…
Fréttir
apríl 21, 2024

Batamessa í Keflavíkurkirkju 28. apríl 2024, kl. 20.00

Vinir í bata í Keflavík bjóða til batamessu 28. apríl n.k. kl. 20.00. Vegna ferminga og páska var engin batamessa í byrjun apríl, en nýr sporahópur í Keflavík ákvað að…
Fréttir
febrúar 25, 2024

Batamessa og aðalfundur í Árbæjarkirkju 10. mars 2024 – kl. 17.00

Vinir í bata í Árbæjarkirkju bjóða til batamessu annan sunnudaginn í mars eða 10. mars n.k. kl. 17.00. Batamessurnar hafa verið vel sóttar og eru góðar og gefandi stundir þar…
Allar fréttir
Hver erum við?

Guð er okkar leiðsögumaður

Vinir í bata er hópur fólks (karla og kvenna), sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl.

Við höfum verið á okkar Andlega ferðalagi með öðru fólki og hvert með öðru og falið Guði að vera leiðsögumaðurinn.

Við höfum fundið að vinna okkar í Tólf sporunum hefur hjálpað okkur að breyta því sem þurfti í lífi okkar og hjálpað okkur að sættast við það sem ekki er á okkar færi að breyta. Tólf spora vinnan hefur þannig fært bata inn í líf okkar og verið okkur andleg vakning. Þess vegna langar okkur til þess að þú fáir líka að reyna bata og eitthvað nýtt og gott inn í þitt líf og þínar aðstæður.

Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu?

Okkur hafa borist reynslusögur

Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður?

Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þú þyrftir á því að halda að skoða lífið þitt - hvert þú stefnir - hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?

Veistu að Tólf sporin eru kjörið verkfæri til að bæta líf okkar? Við erum mörg sem getum vitnað um það af eigin reynslu.

Reynslusögur