Skip to main content
 

Vinir í bata

Vinna okkar í Tólf sporunum hefur bætt líf okkar og verið okkur andleg vakning

 

Vinir í bata

Við erum hópur fólks sem tileinkum okkur Tólf sporin sem lífstíl

 

Vinir í bata

Við erum á andlegu ferðalagi með öðru fólki þar sem Guð er okkar leiðsögumaður

Nýjustu fréttir

Fréttir
febrúar 25, 2024

Batamessa og aðalfundur í Árbæjarkirkju 10. mars 2024 – kl. 17.00

Vinir í bata í Árbæjarkirkju bjóða til batamessu annan sunnudaginn í mars eða 10. mars n.k. kl. 17.00. Batamessurnar hafa verið vel sóttar og eru góðar og gefandi stundir þar…
Fréttir
janúar 31, 2024

Batamessa í Bessastaðakirkju 4. febrúar 2024 – kl. 17.00

Batamessa febrúarmánaðar verður í Bessastaðakirkju, sunnudaginn 4. febrúar n.k. kl. 17.00. Það var hlý og góð batamessa í Lágafellskirkju í janúar, og núna er það hópurinn á Álftanesi sem býður…
Fréttir
janúar 2, 2024

Batamessa í Lágafellskirkju 14. janúar 2024 – kl. 17.00

Batamessa janúarmánaðar verður í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, sunnudaginn 14. janúar n.k. kl. 17.00. Njótum þess að koma saman í batamessu á nýju ári. Við heyrum vitnisburð og presturinn hefur eitthvað…
Allar fréttir
Hver erum við?

Guð er okkar leiðsögumaður

Vinir í bata er hópur fólks (karla og kvenna), sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl.

Við höfum verið á okkar Andlega ferðalagi með öðru fólki og hvert með öðru og falið Guði að vera leiðsögumaðurinn.

Við höfum fundið að vinna okkar í Tólf sporunum hefur hjálpað okkur að breyta því sem þurfti í lífi okkar og hjálpað okkur að sættast við það sem ekki er á okkar færi að breyta. Tólf spora vinnan hefur þannig fært bata inn í líf okkar og verið okkur andleg vakning. Þess vegna langar okkur til þess að þú fáir líka að reyna bata og eitthvað nýtt og gott inn í þitt líf og þínar aðstæður.

Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu?

Okkur hafa borist reynslusögur

Upplifirðu stjórnleysi í lífi þínu og að þú ráðir ekki alltaf við aðstæður?

Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér að þig langaði til og/eða þú þyrftir á því að halda að skoða lífið þitt - hvert þú stefnir - hverjar tilfinningar þínar eru og hvernig þú getur bætt samskipti þín við annað fólk?

Veistu að Tólf sporin eru kjörið verkfæri til að bæta líf okkar? Við erum mörg sem getum vitnað um það af eigin reynslu.

Reynslusögur